Fara beint í efni
Tryggingavernd

VPV Future Pension

Öflug og sveigjanleg lífeyristrygging sem byggir á viðbótarlífeyrissparnaði og fjárfestingu í evrum. Sparnaðurinn er erfanlegur, skattalega hagstæður og býður bæði ævilangan lífeyri og möguleika á eingreiðslu.

VPVÍ samstarfi við VPV, stofnað 1827.

Viðbótarlífeyrissparnaður í evrum

Viðbótarlífeyrissparnaður eða séreignarsparnaður er sparnaður sem dreginn er af launum áður en skattar eru greiddir. Oftast leggur launamaður fyrir 2% eða 4% af launum og fær 2% mótframlag frá launagreiðanda. Viðbótarlífeyrir er í flestum tilfellum afar æskilegur til þess að minnka, eða jafnvel koma í veg fyrir, verulega lækkun tekna þegar komið er á lífeyrisaldur.

Viðbótarlífeyrissparnaður er þægilegt sparnaðarform þar sem vinnuveitandi sér um að greiða iðgjöld. Hann er séreign sem er erfanleg en jafnframt laus til úttektar við 60 ára aldur. Sérstakar úttektarheimildir gilda ef samningshafi verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss. Sparnaðurinn er óaðfararhæfur – kröfuhafar geta ekki sótt inneign ef til gjaldþrots kemur. Sparnaður er dreginn frá skattstofni og lífeyrisgreiðslur eru skattlagðar eins og atvinnutekjur.

VPV Future Pension er einingatengd lífeyristrygging með ævilöngum lífeyri og möguleika á eingreiðslu lífeyris. Boðið er upp á val um tvær ávöxtunarleiðir og hægt er að breyta um ávöxtunarleið á söfnunartíma. Í þessum ávöxtunarleiðum er fjárfest í aðlaðandi verðbréfasjóðum reknum af virtum sjóðastýringarfyrirtækjum, með áherslu á sjálfbærar og fjölþjóðlegar fjárfestingar.

Fjárfestingin er í evrum, sem er stærri og stöðugari gjaldmiðill en íslenska krónan. Að auki er lífeyriseignin að fullu fjárfest í öryggiseignum ef þú velur úttekt í formi ævilangs lífeyris.

Algengar spurningar og svör

Hvað gerist ef ég verð fyrir örorku á samningstímanum?

Ef hinn vátryggði er metinn með 100% læknisfræðilega örorku getur hann krafist þess að heildarinneign VPV Future Pension (samningsinneign og lækkuð ágóðahlutdeild í samræmi við gr. 2.3.(b) í tryggingaskilmálum Future Pension) verði greidd út í jöfnum greiðslum yfir 7 ára tímabil, þó eingöngu ef a.m.k. tvö ár eru liðin frá fyrstu iðgjaldsgreiðslu.

Ef örorkuprósentan er lægri en 100% lækkar árleg útborgun í hlutfalli við lækkun örorkuprósentunnar og úttektartíminn lengist samsvarandi.

Get ég valið um sjóði til að ávaxta viðbótarsparnaðinn?

VPV Future Pension býður upp á val um tvær fjárfestingarleiðir: Pension Balance, sjóðakörfu með blandaðri áhættu, og Pension Dynamic, sjóðakörfu með hærra áhættustigi, þ.e. meiri sveiflum í ávöxtun en einnig meiri líkum á hærri ávöxtun til lengri tíma.

Hverjir eru kostir VPV Future Pension?

VPV var stofnað árið 1827 og er elsta líftryggingafélag Þýskalands.

VPV Future Pension er einingatengd lífeyristrygging. Sparnaðurinn er í evrum, sem er einn stærsti og traustasti gjaldmiðill heims.

Ágóðahlutdeild er úthlutað til viðskiptavina sem aukainneign og bætist ofan á samningseign, þ.e. greidd iðgjöld og ávöxtun þeirra.

Hverjir eru kostir viðbótarlífeyrissparnaðar?
  • Viðbótarlífeyrissparnaður er séreign og mikilvæg viðbót við almennan skyldulífeyrissparnað.
  • Þægilegur sparnaður – launagreiðandi sér um að greiða iðgjöldin.
  • Enginn fjármagnstekjuskattur er greiddur af vaxtatekjum.
  • Hægt að taka út við 60 ára aldur, í einu lagi eða á lengri tíma að eigin vali.
  • Þú sparar allt að helmingi hraðar en með hefðbundnum sparnaði.
  • Langtímasparnaður þar sem vextir geta orðið meirihluti uppsafnaðs sparnaðar vegna áhrifa vaxtavaxta.
  • Auðveldar fólki að hætta að vinna fyrir sjötugt og erfist að fullu.
  • Við andlát er innistæðunni, að viðbættum verðbótum og vöxtum, skipt á milli lögerfingja og hún greidd út samkvæmt ákveðnum reglum.
  • Hægt er að grípa til sparnaðarins ef alvarleg slys eða veikindi draga úr starfsorku.
  • Kröfuhafar geta ekki gengið að viðbótarlífeyrissparnaði við gjaldþrot.
  • Tekjuskattur er greiddur þegar inneignin er tekin út.

Þarftu aðstoð við að velja rétta tryggingu?

Hafðu samband og fáðu sérsniðna tryggingaráðgjöf – þér að kostnaðarlausu.