Fyrir börn frá 1 mánaða til 22 ára
- Verndar barnið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna slyss í leik, keppni eða starfi, eða vegna alvarlegra sjúkdóma.
- Launatap foreldra er vátryggt frá sjöunda degi ef barn þarfnast sólarhringsumönnunar vegna veikinda eða slyss.
- Einföld en góð sjúkdómavernd til viðbótar við örorkubætur. Vátryggt er krabbamein, sykursýki 1, slímseigjusjúkdómur, liðagigt, alnæmi, alvarlegur höfuðáverki og alvarlegur bruni.
- Greitt fyrir breytingar á heimili vegna aðgengis ef barn þarf að nota hjólastól.
- Útfararkostnaður er greiddur að hluta eða öllu leyti ef barn fellur frá.
- Einfalt að sækja um, ekkert áhættumat – öll börn fá vátryggingu.

