Fjárfestir í traustum öryggiseignum VPV
Tilgreinda séreign í VPV Future Pension Classic er hægt að byrja að taka út við 62 ára aldur. Hægt er að dreifa greiðslum til 67 ára aldurs eða leysa hana alla út við 67 ára aldur í eingreiðslu. VPV býður líka upp á að tilgreinda séreignin verði greidd sem ævilangur lífeyrir þegar kemur að 67 ára aldri.
Lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð er 15,5% hjá öllum. Lífeyrissjóðum er heimilt að bjóða sjóðfélögum að ráðstafa allt að 3,5% af lágmarksiðgjaldi í tilgreinda séreign. Þá fer 3,5% í tilgreinda séreign sem er einkaeign sjóðfélaga og 12% í samtryggingu.
Tilgreind séreign
Tilgreind séreign er séreignarsparnaður fyrir þá sem vilja aukinn sveigjanleika við starfslok, en hægt er að byrja að leysa sparnaðinn út við 62 ára aldur. Tilgreind séreign er óaðfararhæfur og erfanlegur lífeyrissparnaður þar sem ekki þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af ávöxtun.

