Starfsemi Tryggingaverndar ehf. sem vátryggingamiðlara og fjármálaráðgjafa er bundin af lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, samkvæmt skilgreiningu í þeim lögum.
Tryggingavernd ehf. hefur þá stefnu um sjálfbærni að kanna vilja viðskiptavina sinna til sjálfbærni fjárfestinga og veita þeim upplýsingar um að hvaða marki þær vörur sem félagið miðlar uppfylla kröfur þeirra um sjálfbærni. Þessi könnun á sér stað í lögbundnu mati Tryggingaverndar ehf. á hæfi viðskiptavina til fjárfestinga og tilhlýðileika þeirra fjárfestingarvara sem félagið býður. Í framhaldi af henni eru viðskiptavinum veittar upplýsingar um hvaða vörur standa þeim til boða sem uppfylla markmið þeirra um sjálfbærni. Ef engin vara uppfyllir markmið viðskiptavinar um sjálfbærni er honum gerð grein fyrir því.
Þau líftryggingafélög sem Tryggingavernd ehf. miðlar viðskiptum til eru öll bundin sömu löggjöf, þ.e. reglugerð ESB nr. 2019/2088, og ber að birta stefnur sínar um sjálfbærni í þeim fjárfestingarvörum sem þau bjóða. Hér að neðan eru hlekkir á stefnur um sjálfbærni í þeim vörum sem Tryggingavernd ehf. miðlar fyrir hönd þessara félaga. Í þeim kemur fram hvort, og að hvaða marki, vörurnar samræmast sjónarmiðum um sjálfbærni, hvernig fylgst er með því og hvaða áhrif sjálfbærnistefnan getur haft á ávöxtun vörunnar.
